Neo 320 Plus Bossableytir – Heitt og kalt vatn

kr.34499

  • Neo 320 Plus
  • Tvær skífur með gúmmíþéttingu til að festa búnaðinn
  • T-tengi úr málmi
  • 38 cm langar vatnsslangömgur úr fléttuðum málmi (Heitt og kalt vatn)
  • Skiptilykill úr plasti
  • Teflon tape
  • Leiðbeiningar fyrir uppsetningu (ath. Góðar leiðbeiningar má sjá á bossi.is)

Auðvelt að setja upp og nota Allur nauðsynlegur búnaður (auk leiðbeininga) fylgja með í kassanum. Uppsetning á því ekki að taka meira en 15 mínútur. Bossableytirinn passar á flest klósett þar sem hægt er að taka klósettsetuna af (og sum þar sem er ekki hægt að taka hana af). Búnaðurinn er festur á milli klósettskálar og setunnar. Auðvelt er að stýra búnaðinum en krómhúðaðir snúningstakkar gera manni kleift að skrúfa frá og stýra vatnsflæði.  Hannað til að henta öllum klósettum Neo Bossableytarnir eru hannaðir til að passa vel undir flestar venjulegar klósettsetur, hvort sem það er bil í milli setu og skálar eða ekki. Innbyggt hreinlæti Stútarnir sem skola bossann þinn eru vel geymdir á bak við hlíf sem ver þá frá skvetti. Þegar skrúfað er frá falla þeir niður fyrir hlífina og hörfa síðan sjálfkrafa aftur við lok notkunar. Hægt er að opna hlífina til að komast að stútunum þegar bossableytirinn er ekki í notkun. Sjálfshreinsibúnaðurinn er svo alltaf handhægur til að hámarka hrenilæti. Stútarnir eru því með tvöfalda vörn frá skvettum og alltaf tilbúnir til að skola á þér bossann, hreinir og fínir. Góðar græjur úr sterkum efnum Luxe bossableytarnir eru vandaðar græjur sem endast. Hver og einn bossableytir á að endast heimilinu í mörg ár, þrátt fyrir mikla notkun. Til dæmis eru vatnslokarnir gerðir úr málm-keramík blöndu og slöngurnar úr ofnu stáli í stað plasts. Luxe bossableytarnir henta því íslenskum aðstæðum vel, þar sem vatnsþrýstingur getur verið hár og heita vatnið heitt. 18 mánaða ábyrgð Allir Neo bossableytar eru í ábyrgð frá framleiðanda í 18 mánuði.

In stock

Category: Tag:

Lýsing

NEO 320 Plus er splúnkunýr Bossableytir úr smiðju LuxBidet með inntaki fyrir heitt og kalt vatn. Þessi frábæri Bossableytir er útbúinn sjálfhreinsikerfi, hita- og þrýstingstilli ásamt því að vera auðveldur í uppsetningu. Frábær lausn fyrir alla bossana á heimilinu.

 

0
    0
    Karfan þín
    Karfan þín er tómTil baka í verslun